|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 15 nóvember
|
28.03.2007 17:12:56 / Ágústa
Ég sé að það eru alveg nokkrir sem kíkja inná
þessa síðu á dag. Ætti ég frekar að halda mig við hana heldur en
www.kitty5.bloggar.is 
»
22.01.2007 13:09:45 / Ágústa
»
31.12.2006 23:31:07 / Ágústa
Gleðilegt Nýtt ár allir! 
»
12.12.2006 03:44:13 / Ágústa
...er spurning sem að ég hef mikið pælt í síðustu daga. Ég held
að mér hafi tekist að týna mér. Eða réttara sagt, aldrei tekist að
finna mig. Gæti verið að eftir öll þessi ár þá hafi
mér aldrei tekist að vera ég sjálf? Aldrei náð að
sýna fólki hvernig ég sjálf er, hvernig ég sjálf hugsa? Í
sjálfu sér get ég ekki svarað þessum spurningum af því að ég veit
ekki sjálf hver ég er. Það er hálf óþæginlegt að vita ekki hver ég
er. Þekkja ekki munninn á því hvenær ég er að leika og hvenær ég er
bara ég. Ef að ég er einhverntíman bara ég?
Ég hugsa alltaf "ég vil vera eins getað og þessi" , vera með
þennan fatastíl, hafa þessi áhugamál, lesa svona bækur, og
ganga svona í vel/illa í skóla. Á hverjum einasta degi skipti ég um
ímynd. Einn daginn vil ég vera strákastelpa sem að er alveg sama um
allt. Daginn eftir vill ég vera litla rólega stelpan -
lestrarhesturinn sem að er með 7 - 9 í öllum skóla fögum. En annan
daginn vill ég bara vera partýljónið sem að gengur í nýjustu tísku,
stelpan sem að allir strákarnir horfa á og slefa á eftir. Stelpan
sem allir þekkja, og allir tala við, öllum líkar við og getur allt
án þess að hafa fyrir því.
Mér hefur ekki enþá tekist að segja til um hvernig týpa ég er,
hvað ég vill gera í lífinu. Ég er svo mikið að reyna að gera allt
og vera allt að ég snýst bara í kringum sjálfan mig. Og núna hef ég
setið á sama reit í 8 ár. Og skil hvorki upp né niður í mér, hvað
ég vil, hverjar þarfir mínar eru, hver eru raunveruleg áhugamál
mín.
Er ekki bara stór hlutur af því sem að ég segji að séu áhugamál
mín einhver leið til að teikna upp ímynd af sjálfri mér eins og ég
vil vera. Eru áhugamál mín ekki bara áhugamál sem að ég hef kúgað
mig til að hafa áhuga á af því að ég vil vera eins og einhver?
Fólk segir að maður eigi að vera maður sjálfur. En til þess að
ég geti það þá verð ég að vita hvenær ég er ég sjálf, vita muninn á
raunveruleikanum og þeim heimi sem að ég vil vera í.
Það sem að veldur mér mestum hausverk í sambandi við þetta er
fyrrverandi kærasti minn, ástin mín sem að ég elskaði svo heitt og
skipti mig öllu máli. En þó svo að ég hafi elskað hann
og geri enn, elskaði hann mig? Gat hann elskað mig þegar
að ég er ekki viss um að hafi verið með mér út af mér, ekki
einhverri ímynd sem að ég var búin að skapa af mér, ímynd sem að
hann hélt að væri ég? Fékk hann einhverntíman að sjá mig með
mitt rétta andlit? Þekkti hann mig eitthvað eftir eins og hálfs árs
samband? Var það ekki bara þessi ímynd sem að ég var að reyna
að móta sem að hann þekkti? Sem að hann elskaði?
Er hægt að þekka einhvern sem að þekkir sig ekki sjálfur?
(more to come)
»
16.11.2006 11:03:46 / Ágústa
Jæja, ég er búin að komast að því að ég er barasta háð þessari
andskotans síðu Það er alveg sama hvað ég geri til að reyna að
hætta með síðuna, mér verður alltaf ofsalega mál að koma aftur
En jæja, ég kem kannski til með að henda inn einu og einu bloggi
svona annaðslagið.
Í augnablikinu er ég að láta mér leiðast í Sögu Spurning
hvort að maður ætti að taka sér frí í sögu á næstu önn... Maður
spyr sig!
En já, eins og fólk veit flest þá hef ég afar sterkar skoðanir.
Núna beinast þessar sterku skoðanir mínar að tilgangsleysi steina.
Þeir bara liggja þarna. What's that all about? Hérna er
listi yfir slæmu hlutina sem að steinar gera...
- Brjóta olíupönnur í bílum.
- Geta ollið bílslysum (þá erum við að tala um stóra
steina).
- Meiða mann þegar að maður situr á jörðinni.
- Brjóta glugga ofl. hluti.
- Þeir eru skítugir og það fylgja þeim oft skordýr.
Hérna er smá sýnishorn af þessum lista mínum. Svo er það listinn
yfir góðu hlutina.
- Það er hægt að nota þá í fiskabúr.
- Hægt að fleyta kellingar með þeim (í mínu tilfelli telst þetta
samt eiginlega sem galli).
Eins og sést þá erum ég og steinar ekki bestu vinir Mér
finnst þeir leiðinlegir, kaldir, ljótir, skítugir og tilgangslausir
Ég held að heimurinn væri mun betri án þeirra. En jú, það er
nú bara mín skoðun ekki satt? 
Svona til gamans ákvað ég að gera annan lista yfir hluti sem að
eru álíka tilgangslausir og steinar... Jafnvel tilgangslausari
- Davíð Oddson
- Citroen Bílar (í alvörunni, þessir bílar eru náttúrulega gerðir
til að vera ljótir) Mín skoðun er sú að það er alveg nóg af
bílategundum í heiminum, flottum bílategundum. Þurfum ekki á þessu
ógeði að halda.
- stafurinn É. Mér finnst eins og við ættum að gera eins og Danir
og nota frekar Je. Tökum nokkur dæmi: Jeg (ég), Jel (él).
En jæja, núna er tíminn búinn þannig að ég þarf að hætta þessu

Ágústa Kveður!
»
28.09.2006 18:07:42 / Ágústa
Jæja, þá er þessi
síða farin í frí! Hún er komin í rugl þannig að ég er búin að
færa mig yfir á bloggar.is 
Ágústa Kveður
www.kitty5.bloggar.is
»
24.09.2006 22:45:08 / Ágústa
»
21.09.2006 00:47:58 / Ágústa
»
15.09.2006 02:55:52 / Ágústa
»
09.09.2006 16:05:55 / Ágústa
»
06.09.2006 11:10:12 / Ágústa
»
01.09.2006 01:42:16 / Ágústa
»
26.08.2006 13:20:58 / Ágústa
»
21.08.2006 23:49:38 / Ágústa
»
15.08.2006 22:15:29 / Ágústa
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|